Átök, hungur og sjúkdómar ógna lífi milljóna barna í Kongó
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó stendur frammi fyrir einni verstu mannúðarkreppu heims þar sem börn gjalda hæsta verðið.
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó stendur frammi fyrir einni verstu mannúðarkreppu heims þar sem börn gjalda hæsta verðið.
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó er með verstu löndum heims til þess að alast upp í. Landið býr yfir einu versta heilbrigðiskerfi í heiminum, en 20% barna undir 5 ára deyja úr sjúkdómum sem hægt er að koma í veg fyrir með réttri meðferð.
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó er staðsett í Mið-Afríku og er annað stærsta land álfunar og það ellefta í heiminum. Landið er eitt það fátækasta í heimi, þrátt fyrir að búa yfir gífurlegum náttúruauðlindum á borð við demanta, gull og kóbalt. Íbúar Kongó eru um 113 milljónir þar af er um helmingur undir 15 ára.
Mikil átök hafa geisað í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í tæplega þrjá áratugi. Mannréttindabrot eru framin úti um allt land og kynferðisofbeldi er beitt sem stríðsvopni. Börn eru gríðarlega berskjölduð fyrir átökunum en ítrekað hefur verið ráðist inn í skóla og sjúkrahús og hefur fjöldi barna verið drepinn eða þau beitt ofbeldi. Einnig veldur vannæring, vosbúð af ýmsu tagi og sjúkdómar á borð við Ebólu og Kóleru miklu manntjóni í landinu. Talið er að 26,3 milljónir landsmanna þurfi á mannúðaraðstoð að halda, en 49,9% þeirra eru börn.
Átökin hafa hrakið 6,5 milljónir manna á flótta innan eigins lands sem er næsthæsti fjöldi flóttafólks í eigin landi í heiminum. Börn á flótta verða oft viðskila við fjölskyldur sínar og eru í mikilli hættu á að verða fórnarlömb ofbeldis. 19,6 milljónir landsmanna búa við fæðuóöryggi og 4,6 milljónir eru alvarlega vannærð.
Suður og Norður-Kivu, héruð í austanverðu landinu, eru tvö af hættulegustu svæðum landsins því þar eru átökin á milli vopnaðra hópa og hersveita eldfim. Börn eru numin á brott af heimilum, beitt kynferðisofbeldi og neydd til að ganga til liðs við stríðsaðila. Talið er að um 475.000 börn þurfi á áfallahjálp að halda vegna átakanna í Norður og Suður-Kivu. Þörfin fyrir neyðaraðstoð hefur einnig aukist vegna flóða, kóleru- og ebólufaraldra. Brýnt er að bæta aðstæður og öryggi barna í Kongó með því að auka mannúðaraðstoð handa börnunum og fjölskyldum þeirra.
Barnaheill - Save the Children á Íslandi hófu mannúðarverkefni í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó með stuðningi utanríkisráðuneytisins haustið 2020. Áætlað er að verkefnið nái til 10.000 barna og 2.000 fullorðinna.
Markmið verkefnisins er að vernda börn gegn ofbeldi, misnotkun, útskúfun og vanrækslu, auk þess að vernda börn gegn því að vera neydd til að ganga til liðs við vígahópa og styðja við þau börn sem hafa þegar verið neydd til þess. Verkefnið miðar að því́ að ná þessu fram með því að styðja við fjögur Barnvæn svæði og samfélagslega leidda barnavernd og bjargráð. Tilgangur Barnvænna svæða er að skapa umhverfi þar sem börn geta komið saman til að leika sér og taka þátt í starfsemi sem er bæði fræðandi og efla félags- og tilfinningalega færni. Í þessum rýmum er lögð áhersla á valdeflingu barna og er þeim kennt hvert skuli leita þegar þau þurfa á aðstoð að halda. Allt starfsfólk sem vinnur að verkefni Barnaheilla í Suður-Kivu er þjálfað í að þekkja og bregðast við ofbeldi, með áherslu á kynferðisofbeldi.
Í verkefninu vinna Barnaheill náið með Barnaheillum - Save the Children í Kongó.
Yannick var 15 ára þegar skæruliðar mættu í þorp hans í Kongó og tóku börn í burtu frá fjölskyldum sínum til þess að þjálfa þau upp sem skæruliða.
Yannick lýsir því hvernig hann og þrjú önnur börn voru látin ganga til móts við skæruliðana, vopnaðir prikum. En þegar skæruliðarnir sáu þau byrjuðu þeir að skjóta.
Barnaheill - Save the Children veittu Yannick öruggt skjól ásamt fleiri börnum og hjálpuðu honum að finna fjölskylduna hans. Þau voru sameinuð aftur á ný.
Luc var aðeins 19 mánaða þegar móðir hans kom með hann á sjúkrahús í Kongó þar sem starfsmenn Save the Children starfa. Hann var meðvitundarlaus, var með alvarlega lungnabólgu og barðist fyrir lífi sínu. Sem betur fer fékk hann skjóta meðhöndlun sem bjargaði lífi hans! Hann fékk sýklalyf og súrefni. Eftir aðeins einn dag var Luc farið að líða betur og fljótlega náði hann sér að fullu. Eftir að Luc var útskrifaður af sjúkrahúsinu hefur honum verið fylgt reglulega eftir og er í dag heilbrigður drengur.
Luc fékk hjálp í tæka tíð, en mörg börn fá hana ekki. Á 30 sekúndna fresti deyr barn úr lungnabólgu eða um 800.000 börn á ári. Vegna kórónuveirufaraldurs hafa sjúkrahús ekki náð að sinna öllum sjúklingum sem þurfa á meðhöndlun að halda. Til að veita börnum eins og Luc aðgang að lyfjum og læknisþjónustu þurfum við á stuðningi þínum að halda, meira en nokkru sinni fyrr. Þú getur keypt lífsnauðsynleg lyf fyrir börn hér.
Linnulausar árásir á almenna borgara halda áfram - 22. júní 2022
Heimsókn Barnaheilla til Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó - 15.11.2021
Barnaheill í Suður-Kivu í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó - 21. janúar 2021
Hundruð þúsunda barna verða fyrir ofbeldi og dauða á hverjum degi - 13. janúar 2021
Styrkur til Barnaheilla vegna mannúðaraðstoðar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó - 1. október 2020
Gleymda stríðið - 83 börn myrt í Kongó - 13. ágúst 2020