29.05.2019
Í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmálans á þessu ári fjalla Barnaheill, umboðsmaður barna og Unicef á Íslandi um ákveðnar greinar Barnasáttmálans mánaðarlega og útskýra nánar inntak þeirra til fræðslu og upplýsinga. Grein maímánaðar fjallar um 32. grein Barnasáttmálans, þ.e. rétt barna til vinnuverndar.
28.05.2019
En eitt af hverjum fjórum börnum er þó enn svipt réttinum til öruggrar og heilbrigðrar bernsku, þar sem börn sem búa á átakasvæðum eða eru á flótta eru verst sett.
Í það minnsta 280 milljónir barna hafa betri möguleika á að vaxa úr grasi heilbrigð, menntuð og örugg nú en nokkru sinni áður á síðustu tveimur áratugum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnaheilla – Save the Children, Changing Lives in our Lifetime – Global Childhood Report 2019.
16.05.2019
Í dag, 16. maí, tóku börn um allan heim þátt í ákalli Barnaheilla – Save the Children um að stöðva stríð gegn börnum. En 420 milljónir barna í heiminum búa á svæðum þar sem átök geisa. Dagurinn markar upphaf átaksins STÖÐVUM STRÍÐ GEGN BÖRNUM (STOP THE WAR ON CHILDREN) sem er í tilefni af 100 ára afmæli Barnaheilla – Save the Children.
15.05.2019
Aðalfundur Barnaheilla – Save the Children á Íslandi var haldinn þann 13. maí sl. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var kosið um tillögu stjórnar þess efnis að samtökin Verndarar barna – Blátt áfram sameinist Barnaheillum og að þau verkefni sem samtökin hafa sinnt verði framvegis unnin undir hatti Barnaheilla. Tillagan var samþykkt samhljóða. Ný stjórn var kosin einróma á aðalfundinum.
08.05.2019
Næsti morgunverðarfundur Náum áttum-hópsins verður miðvikudaginn 15. maí kl. 8:15–10:00 á Grand hótel. Fjallað verður um hlutverk foreldra í forvörnum.
04.05.2019
Kórar Lindaskóla, Ingunnarskóla og Vogaskóla sungu saman til styrktar Barnaheillum í Guðríðarkirkju í dag.
02.05.2019
Fellibylurinn Kenneth gekk á land í Mósambík fyrir viku síðan, aðeins um mánuði eftir að fellibylurinn Idai reið þar yfir. Fréttir berast af mikilli neyð á svæðinu og hafa Barnaheill – Save the Children fært viðbúnaðarstig á hæsta þrep.