30.03.2022
Undanfarnar vikur hafa verið hörmulegar fyrir íbúa Úkraínu. Yfir 3,5 milljónir manna hafa lagst á flótta og leitað skjóls upp á líf og dauða. En eru um 40 milljónir manna eftir í Úkraínu, þar af 12 milljónir sem þurfa á brýnni og lífsnauðsynlegri mannúðaraðstoð að halda.
24.03.2022
Nú er mánuður liðinn síðan að innrásin í Úkraínu hófst. Samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafa 10 milljónir manna flúið heimili sín í Úkraínu vegna stríðsins, þar af 4,3 milljónir barna en það er meira en helmingur allra barna í landinu.
23.03.2022
Á undanförnum misserum hafa ýmsar starfsstéttir samið um styttingu vinnuvikunnar. Með styttingunni fær fólk meiri frítíma til að sinna sjálfu sér, sínum áhugamálum og í samveru með fjölskyldu og vinum. Ekki er þetta í fyrsta skipti sem vinnuvika launafólks er stytt. Þann 1. janúar árið 1972 tóku gildi lög um styttingu vinnuviku í 40 stundir úr 44 stundum. Flestir hættu þá að vinna á laugardögum og jafnframt var vinnuvika skólabarna stytt úr sex í fimm daga.
16.03.2022
Átökin í Sýrlandi hafa nú staðið í 11 ár og eru lifandi martröð fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Milljónir barna hafa aldrei þekkt annað en stríðsástand. Rannsóknir hafa sýnt fram á að átökin munu hafa langvarandi áhrif á börn, en þau þjást mörg af andlegri vanlíðan, streitu og kvíða og munu bera þess merki það sem eftir er ævinnar.
16.03.2022
Þann 1. mars síðastliðinn hófst Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi í ellefta sinn. Þótt veðrið hafi verið yfirfullt af gulum, appelsíngulum og jafnvel rauðum viðvörunum síðustu vikur þá lítum við svo á að söfnunin sé ákveðinn vorboði. Daginn er tekið að lengja og það styttist óðfluga í vorið með bjartari tímum og vonandi betri veðurtíð.
15.03.2022
Barnaheill – Save the Children á Íslandi undirrituðu í gær rammasamning við utanríkisráðuneytið á sviði mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu. Rammasamningurinn veitir Barnaheillum aukinn fyrirsjáanleika í starfi sínu sem auðveldar skipulagningu verkefna og eykur viðbragðsflýti neyðaraðstoðar.
14.03.2022
Næsti kynningarfundur Náum áttum-hópsins verður miðvikudaginn 16. mars 2022 kl. 8:30 - 10:00 á ZOOM. Fundarefnið að þessu sinni ber yfirskriftina Skóli fyrir öll börn. Lausnir og tækifæri til farsældar. Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga.
09.03.2022
Ane Lemche, sálfræðingur og ráðgjafi hjá Barnaheillum – Save the Children, segir að börn um allan heim hafi ef til vill ekki skilning á því sem er að gerast í Úkraínu og að hjá þeim kunni að vakna spurningar um þær myndir, sögur og umfjöllun sem þau verða áskynja.
01.03.2022
Hjólasöfnun Barnaheilla var hleypt af stokkunum í dag í ellefta sinn. Kolbrún María Másdóttir hjá Krakkafréttum á KrakkaRúv afhenti Ölbu Davíðsdóttur Lamude og Blæ fyrsta hjólið í söfnunina og hvatti þannig aðra til að láta gott af sér leiða og koma hjólum sem ekki eru í notkun til þeirra sem hafa not fyrir þau.